Ásdís Ýr
Ljósmyndarar
08.01.2009 23:54:00 / asdisyr

Jæja...

Nú fara hlutirnir að gerast!

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.12.2008 11:09:18 / asdisyr

Jæja... hvernig væri að blogga smá?!?!?!

Ég er ekki búin að standa mig í þessu... örugglega allir lööngu hættir að kíkja hérna inn.. en ég ætla samt að bulla eitthvað..

Jólin eru gengin í garð og gott betur en það, það er þriðji í jólum í dag!

Ég vona að þið hafið öll haft það eins og best er á kosið!  Sumir geta kannski ekk haft það mjög gott, sumir eiga jafnvel mjög erfitt þessa dagana og ég votta þeim samúð mína.

Við vorum bara litla familían (kannski ekkert svo lítil lengur) hérna heima á aðfangadag. Við byrjuðum á að liggja í leti um morguninn, fengum jólasveina í heimsókn rétt fyrir hádegi og fórum svo í bíltúr til að klára að dreyfa jólakortum og pökkum.  Svo fórum við heim, byrjuðum að sjóða londonlambið, baða liðið, klæða í spariföt og allt þetta sem þarf að gera.
Aron Leví raðaði nokkrum pökkum undir tréð meðan við settum matinn á borðið og svo kom settist hann við borðið með okkur kl 6 og borðaði rosalega mikið!  Ég held ég hafi aldrei séð hann borða svona mikið! Við borðuðum í rólegheitum og gengum svo frá eftir matinn meðan Aron Leví raðaði restinni af pökkunum undir tréð (fékk smá aðstoð með stæstu pakkana).
Svo var farið í að opna öll þessi ósköp!  Vá, ekkert smá pakkaflóð! 
Aron Leví var hinn rólegasti, við þurftum t.d. að taka alla bókapakka frá og geyma þar til síðast því ef hann opnaði bók þá var henni flett alveg í gegn áður en hann fékkst til að opna annan pakka... þetta hefði tekið marga daga ef hann hefði opnað stærstu bækurnar strax... svo dóta- og fatapakkar voru opnaðir fyrst, því raðað fallega á sófann og svo voru bækurnar teknar upp og skoðaðar fram og til baka fram yfir miðnætti!
Á jóladag komu mamma, pabbi og Árný amma í brunch og tóku svo Aron Leví með sér heim.  Við höfðum kósíkvöld og horfðum á ca 3 bíómyndir...
Annan í jólum fórum við í hangikjöt til mömmu og pabba ásamt systkinum pabba, mökum og börnum.  Æðislegur dagur!
Ég vil þakka öllum fyrir kortin og gjafirnar!  Við erum alsæl með þetta allt!

Jólakveðja
Ásdís Ýr


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2008 07:11:13 / asdisyr

Verð að segja ykkur þessa mekisfrétt!

Við erum búin að vera með Mikael Darra í svefnátaki.  Það lýsir sér þannig að ég gef honum brjóst rétt fyrir 9 á kvölin og Hjörtur leggur hann í rúmið kl 9 og svæfir hann.
Það er bannað að taka hann upp úr rúminu sama hvað hann grætur mikið.  Svo ef hann vaknar á nóttunni þá fer Hjörtur til hans og sama sagan, bannað að taka hann upp!
Mikael Darri fær ekki að hitta mig fyrr en þegar hann er vaknaður á morgnana og búinn að fá morgunmat.

Þetta byrjaði föstudaginn fyrir viku síðan. Þá vaknaði nokkrum sinnum yfir nóttina og fyrstu 3 næturnar voru frekar erfiðar og fóru versnandi (hann vaknaði oftar eftir því sem leið á átakið).  Svo komu ágætar nætur inn á milli, en stefndi ekkert í að vera að lagast, hann vaknaði sumar nætur á klukkutíma fresti og fimmtudagsnóttin var rosaleg, þá vakti hann nánast stanslaust frá kl 3!

Í gær fór hann að sofa kl 9 eins og vanalega og Hjörur trúði ekki sínum eigin augum þegar hann vaknaði við hann, leit á klukkuna og sá að hún var orðin hálf sjö!!!!!
Barnið svaf ALLA NÓTTINA!!!

Vonandi er þetta fyrsta nóttin af þeim góðu, en ekki óvart ein góð nótt...
Það væri nú lúxus að fá að sofa heilar nætur!

Varð að fá að deila þessu með ykkur elskurnar mínar!


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 14:18:50 / asdisyr

Jájá.. ég er ekki nógu dugleg við þetta....

Málið er bara að það er soldið mikið að gera þessa dagana... get ekki beðið eftir fyrstu helginni í des!

Ég er að reyna að klára síðustu verkefnin í skólanum.  Er akkurat núna að lesa um liti í pentun og skila verkefni úr því.  Mjööög flókið fyrirbæri, en af því ég veit það nýtist mér þá læt ég mig hafa það!
Ég þarf að klára að vinna myndir úr ca 2 myndatökum því það eru 5 tökur um helgina svo það verður verkefni næstu 2ja vikna eða svo. 
Í næstu viku verður lokapróf í Ljós- og litafræði áfanganum í skólanum og nóg að læra fyrir það.  Ég á að vera byrjuð á lokaverkefni í myndvinnsluáfanganum, en ég er með heilastíflu og fæ enga hugmynd að verkefni! 
Ég á eftir að gera 7 verefni af 11 í Myndbygging og formfræði áfanganum, en það er reyndar ekki nema 1-2 kvöldstundir þegar ég læt mig hafa það að setjast niður og vatnslita... (ekki það skemmtilegasta, eins og að vera komin í leikskóla aftur).

Svo er ég komin í svo mikið jólaskap að ég er að reyna að finna tíma inn á milli til að gera smá jólahreingerningu og svona... svo ætla ég að skreyta þegar ég hef tíma!  (örugglega bara þegar ég er búin með skólann).  Þetta er í fyrsta skipti sem það er búið að skreyta möööörg hús í götunni, en ég er ekki komin með eitt einasta skraut!

Svo er það auðvitað þetta venjulega, hugsa um börnin, kallinn, hundinn og heimilið! 
Þetta er mikið, en æðislega skemmtilegt! 

Hér sjáið þið ástæðuna fyrir því að það er ekki mikið að gerast í mínum bloggheimi... en það breytist þegar brjálæðið er búið! :o)



» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2008 12:33:34 / asdisyr

Hmmm...

veit ekkert hvað ég á að skrifa, en frænkan mín kom með komment á það að ég mætti ekki hætta að blogga og hvað gerir maður ekki fyrir svona góðar frænkur?  Sérstaklega því hún gæti farið að læra ef hún hefði ekkert blogg til að lesa!  Það má náttúrlega ekki gerast :o)

En allavega, helgin var rosa notó hjá okkur.  Á föstudaginn byrjaði ég á hvolpanámskeiði með Skuggann minn.  Hann er náttúrlega bara bestur og þetta var rosa gaman!  Get ekki beðið eftir næsta föstudegi!   Svo kom ég heim og þá var tilbúið slátur í matinn og við hámuðum í okkur dýrindis slátur!   Svo var lært fram á kvöld, eða réttara sagt fram á nótt.  Ég var ekki komin upp í rúm fyrr en rétt fyrir 2 um nóttina. Svo vaknaði Mikki mús og kom uppí, drakk og vesenaðist alla nóttina, kúkaði eldsnemma um morguninn svo ég svaf nánast ekkert þá nóttina.

Laugardagurinn fór mikið í myndatökur, ein kl 10 og ein kl 13.  Svo fórum við fjölskyldan í göngutúr og dúlluðumst eitthvað saman.  Elduðum góðan mat og svo fór Hjörtur í innflugningspartý/afmæli og ég var heima í tölvunni, ætlaði snemma að sofa, en ég bara fann ekki "turn off" takkann á tölvunni og ekki fer maður að sofa frá tölvunni í gangi.  Um miðnætti fann ég takkann og fór að sofa.  Þá byrjaði Mikki mús aftur að vakna, kom uppí og brölti alla nóttina, kúkaði kl 6 og vildi svo fljótlega fara fram að borða seríos og hafa fjör!

Sunnudagurinn byrjaði á letikasti fram að hádegi, myndataka kl 13 og svo fórum við í sveitina í matarboð, hittum mömmu, pabba, kristján, árna, rahel, árna og guggu og árnýömmu.  Mjög notalegt kvöld og fórum beint upp í rúm að horfa á dagvaktina þegar við komum heim um kvöldið.

Vá, þetta var asnaleg lýsing á heilli helgi... það eina sem vantaði var hvenær ég pissaði og kúkaði... ég held ég sleppi því samt!

Kv. ásdís


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 08:12:11 / asdisyr

Hitt og þetta, aðalega þetta...

Ég fór með litla strumpinn minn til læknis í fyrradag því hann var ennþá að æla þá (ca einu sinni á sólahring, en það er samt of mikið finnst mér).  Ég fór til Maríönnu og hún var æðisleg.  Hún var fyrsta manneskjan sem var virkilega hneiksluð á því að barnið væri ennþá bara á brjósti og var sko ekki sama!  Hún skoðaði hann nokkuð vel, kíkti í eyrun og hálsinn o.fl.  Svo sagðist hún vilja fá blóð- og þvagprufu úr honum til að vita hvort það væri einhverstaðar sýking eða e-ð (hefur reyndar ekki verið með hita svo ég efast um það).  Hún talaði um að athuga hvort hann væri með fæðuofnæmi/óþol.  Svo sagði hún að börn gætu reyndar látið svona þegar þau væru að taka tennur og mér finnst það mjög góð skýring.  Hann er búinn að vera í rosalegri tanntöku.  Hefur aldrei stoppað, kemur alltaf önnur um leið og ein er sprungin.  HAnn virðist kveljast frekar mikið við tanntökuna og það er lengi að springa fyrir þeim, þær eru löngu farnar að sjást loksins þegar skinnið rifnar af þeim.   Núna eru samt komnar 8 tennur (sprakk fyrir síðustu nóttina eftir að hann fór til læknisins) og yfirleitt kemur þá ekki meira í soldinn tíma.  Hann er líka farinn að fá meiri matarlyst og hættur að æla (7,9,13).  Ef hann verður áfram góður núna og fer að borða og verða værari þá er ég pottþétt á því að þetta hefur bara verið tanntakan því ég sá svo rosalega breytingu á honum eftir að þessi áttunda tönn lét ljós sitt skína!

Núna er ég að fara að græja mig fyrir bæjarferð með mömmu, við ætlum að nýta ömmudaginn í að versla jólagjafir og svona stúss.  Jólin eru nú alveg að koma!

Annars hef ég voða lítinn tíma til að blogga þessa dagana... orðið svo mikið að gera í myndatökunum að ég get kannski bókað 2 í viðbót en svo verð ég að segja stopp fyrir jólin...!

Knúsiknús á þessa fáu sem nenna að lesa um mig og mín veiku börn og fleira bull sem kemur út úr mér...

Ásdís Ýr


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 23:04:27 / asdisyr

Fróðleiksmoli dagsins

Frumlitir samlægrar litablöndunar eru:  Rauður, Grænn og Blár  (RGB)
Frumlitir frádgrægrar litablöndunar eru: Cyan, Magenta og Gulur (CYM)  Svörtum er oft bætt við og K er notað til að tákna hann (CMYK)  Ekki hægt að nota B því það er sama og Blátt.

Hef ekkert annað að segja


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 13:55:45 / asdisyr

Veikindabæli...

Ótrúlegt hvað maður verður miglaður þegar einhver er veikur á heimilinu.. það verður svona "sofilykt" í húsinu og dimmt og drungalegt... :(

Hjörtur var ælandi í allan morgunn og Mikael Darri líka.  Núna er Mikael Darri ekki búinn að æla i soldinn tíma, en hann er að dunda sér við að kúka... vonandi er hann bara að losa sig við restina af pestinni!  Mjög leiðinlegt þegar svona kríli eru með gubbuna... þau gubba bara þar sem þau sitja eða liggja..
Hjörtur hefur vit á því að hlaupa á klóið... sem betur fer... :haha:

Ég er sem betur fer að sleppa... held ég allavega... 

Hjörtur var með hita fyrir helgi, Aron Leví gubbaði í leikskólanum á föstudaginn, en var hress um leið og hann kom heim.  Hann fékk svo niðurgang á sunnudaginn og svo þetta í dag... ég er alveg komin með nóg af veikindum!   En vá hvað ég er samt mikið hörkukvendi!  (7,9,13)

Best að fara að sinna kjúklingunum
Kv. Ásdís


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.10.2008 00:34:04 / asdisyr

Er maður bissí eða?

Já... ég er semsagt ekki búin að vera dugleg að blogga... allavega ár og aldir síðan Aron Leví datt á tennurnar...
Nú sit ég hérna í tölvunni, búin að búa til forsíðu á tímarit fyrir skólann og vá hvað ég er klár... einhver sem er á leiðinni að stofna brúðkaups tímarit og vantar forsíðu?  :$

Það eru 2 vinir hans Hjartar í heimsókn og hvað ætli þeir séu að ræða?  ...jú... kreppuna!
Óþolandi hvað það er ekki hægt að ræða um neitt annað en kreppu, peninga, spara, lán o.s.frv. o.s.frv...
Þetta er að breyta hinu daglega lífi okkar mest á eftirfarandi hátt:
Þegar íslendingar höfðu ekkert sérstakt að segja þegar þeir hittust, þá ræddu þeir alltaf um veðrið.
Núna ræðum við um kreppuna...  skiptumst á sparnaðarráðum, segjum brandara um Davíð Oddsson...
Æ... ég held að veðrið hafi verið meira spennandi.

Annars er lítið að frétta... brjálað að gera í skólanum og myndatökum... úff.... hef varla undan!

Ætla að hætta þessu bulli í bili...
Lov jú oll skiluru!

p.s. Þóra og co  takk fyrir komuna!



» 3 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 15:50:35 / asdisyr

Hrakfallabálkur

Hann Aron Leví var að leika við Skugga í gærkvöldi með látum.  Auðvitað hlustaði hann ekki á mig þegar ég bannaði honum margsinnis að hlaupa, hoppa í sófanum og allt þetta... á endanum heyrði ég hátt BONK og svo grát.  Þegar ég leit fyrir aftan mig lá Aron Leví killiflatur á gólfinu og það blæddi úr munninum á honum.  Hann var kominn með sæta snoppu svo hann var eins og önd.  Ég hélt að hann hefði bara fengið sár undir efri vörina, en þegar ég fór að skoða betur blæddi undan tannholdinu meðfram 2 framtönnum í efri góm.  Þá skoðaði ég betur og fann að þær voru pínulítið lausar...
Hjörtur var í skólanum og ég með strákana mína grátandi á sitthvorum handleggnum, einn slasaðan, einn þreyttan og pirraðan og Skuggi flæktist í fótunum á mér því hann hafði áhyggjur af besta vini sínum.
Aron Leví róaðist eftir smá tíma og nýtti sér aðstöðuna og bað mig að leika við sig... (hélt ég myndi pottþétt segja já, ekkert mál af því hann var svo slasaður...).   Svo þurfti hann að pissa og þá byrjaði ballið, hann sá blóð í speglinum, sá að það blæddi úr munninum og nefinu! Þá var byrjað að gráta aftur af fullum krafti og hann grét þangað til Hjörtur kom heim og fór með honum upp í rúm og hann sofnaði. 
Við hringdum í tannlækni í morgunn og hann sagði okkur bara að fylgjast með hvort tennurnar myndu grána því ef þær gera það þarf að mynda þetta til að sjá hvort þær hafi klemmt æðarnar fyrir fullorðinstennurnar, ef svo er, þarf að taka þessar litlu sætu tennur og barnið verður tannlaust næstu 2-3 árin.. :s

Hann er samt sætastur og besti strákurinn :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 11:01:30 / asdisyr

Lasinn lítill kútur...

Mikael Darri er búinn að vera lasinn um helgina.  Var með 40stiga hita á föstudaginn sem lækkaði hægt og rólega yfir helgina.  Hann var svo mikið veikur á föstudaginn að hann hélt varla höfði, hann var þreyttur allan daginn, svaf meira og minna ef ég leyfði honum að hanga á brjósti... auðvitað leyfði ég honum það, honum leið svo illa...
Í gær var hann orðinn hitalaus, en ennþá vælinn og lítill.  Hann er að fá tennur í efri góm, sprungið fyrir annari framtönninni og hin á leiðinni...
Núna er hann kominn með útbrot á magann og bakið.. frekar mikið.  Mér stendur ekki alveg á sama um þetta, hann er svo ólíkur sjálfum sér.  Ég ætla að kíkja með hann á vaktina í dag.  Auðvitað ekki hægt að fá tíma hjá doksa nema með löngum fyrirvara.

Núna er hann sofandi og ég er að dunda mér við að vinna myndir og ætla að henda einhverju á flickr... alveg kominn tími til að sinna þeirri blessuðu síðu.. :s

Í gær komu Palli og Auður í mat til okkar.  Takk kærlega fyrir komuna elskurnar mínar! 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 14:41:10 / asdisyr

Bylting ársins!

Ný uppfinning sem gerir lífið betra!

Settu hnút á tannþráðinn og dragðu hann í gegn á milli tannanna.  Með þessu ertu ekki bara að nudda skítinn milli tannanna með þræðinum, heldur klórar hnúturinn skítinn burt!

Prófðu og þú finnur muninn!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 10:22:18 / asdisyr

vorkenna eða ekki vorkenna?

Ég vorkenni þeim sem höfðu allt sitt sparifé í hlutabréfum hjá glitni...

ÉG vorkenni þeim sem hafa misst vinnuna sína og finna sér ekki aðra vinnu.

Ég vorkenni þeim sem hafa alltaf rétt náð að lifa út mánuðinn, því núna er miklu dýrara að lifa, matur, bensín o.fl. hefur hækkað mikið.

Ég vorkenni bændum því áburður og margt fleira sem þeir þurfa nauðsynlega á að halda hefur hækkað rosalega, en mig grunar nú að þeir fái ekki mikið hærra borgað fyrir mjólk og aðrar afurðir.

Ég vorkenni skólafólki sem er að reyna að lifa á námslánum... efast um að þau hækki miki á meðan skólagjöld, matur og bensín hækkar og hækkar...

EN ég vorkenni EKKI þeim sem keyptu sér hús á 100% myntkörfuláni, bíla á 100% myntkörfuláni, fyrirtæki á 100%myntkörfuláni o.fl o.fl... allt á lánum og hélt í alvöru að það myndi reddast! 

Ég vorkenni ekki smiðum sem keyptu fullt fullt af lóðum og ætluðu að byggja og byggja og græða feitt!  Héldu þeir í alvöru að öll þessi hús myndu seljast og allt ganga eins og í lygasögu??

Það er fullt af fólki sem á erfitt og mun eiga erfitt á næstunni, en við erum líka týpískir íslendingar sem eru allaf svooo hissa þegar kemu vetur, samt hefur hann alltaf komið þegar sumarið er búið... 

Og hvenær ætlar Davíð Oddsson að skammast sín og láta sig hverfa?

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 06:51:10 / asdisyr

Sofi sofi...

Við ákváðum að byrja í svefnátaki á föstudagskvöldið.  Við fórum ekkert til ráðgjafa eða neitt svoleiðis, notuðum bara aðferðir sem við höfum heyrt fólk tala um sem hefur farið til ráðgjafa.
Við ákváðum að gera þetta þannig að ég gef Mikael Darra brjóst frammi í stofu kl 9 á kvöldin og svo tekur Hjörtur hann og fer með hann upp í rúm og svæfir hann.  Svo fær hann ekkert að sjá mig fyrr en kl 7 morguninn eftir!  Hjörtur sinnir honum ef hann vaknar og hann er ALDREI tekinn upp úr rúminu þangað til.
Ég bjóst við að þurfa að flytja að heiman því það yrði grátið alla nóttina, en viti menn.  Hann vaknaði rétt eftir miðnætti, en það tók ca 2 mínútur fyrir Hjört að svæfa hann aftur. Svo vaknaði hann kl 5 og það var sama sagan, fljótur að sofna aftur.  Svo var reyndar kominn dagur í hans augum kl 6, þá var hann bara ekkert þreyttur lengur og þá fannst okkur ekki hægt að ætlast til þess að hann svæfi meira.   Hjörtur fór þá með hann fram og reyndi að gefa honum smá að borða, en ég kom ekki fram fyrr en kl 7.  Þá fékk hann að drekka, okkur báðum til mikillar hamingju því ég var náttúrlega að springa og náttfötin mín á FLOTI!
Núna var nótt nr 2 að klárast og ég verð að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um hvernig gekk því ég rumskaði allavega ekki einu sinni í alla nótt!  Kannski var Hjörtur meira og minna vakandi, hef ekki hugmynd um það.  Það breyttist reyndar aðeins hjá okkur planið því hann sofnaði kl 8 í gærkvöldi á leiðinni heim frá Hellu og þessvegna fékk hann að drekka kl 6 í morgunn, en ekki 7.  En það er allt í góðu.

Obbossí.. allt of langur pistill.. best að hætta
kv. Ásdís sem svaf sína fyrstu heilu nótt í marga marga mánuði!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 10:44:56 / asdisyr

Ömmudagur o.fl

Í gær var ömmudagur.  Ömmudagar lýsa sér þannig að mamma kemur til mín og er hjá mér allan daginn.  Við erum eitthvað að dúlla okkur, taka til, baka eða bara hvað sem okkur dettur í huga að gera þann daginn.  Mamma ákvað að taka frá einn dag í viku til að nota með okkur, knúsast í Mikael Darra og hjálpa dóttlunni sinni.
Bússíbú!
(núna þýddi þetta takk fyrir daginn mamma)
Núna er ég að fara að læra, alltaf kíkir maður samt einn hring á blessaða internetinu fyrst... óþolandi þetta net!
Annars er allt fínt að frétta, brjálað að gera og það er æðislegt! 

Vona að þið farið ekki illa út úr fjármála-ruglinu sem er í gangi!

Kveðja Ásdís Ýr


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagsetning
15. mars 2010
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Klukkan
RSS tengill